Af einhverjum ástæðum hef ég ekki kynnst elduðu hvítkáli öðruvísi en soðnu með kjötfarsbollum. Mér finnst hvítkálið gott þannig en elda þetta eiginlega aldrei því ég nenni ekki að gera karrýsósuna sem mér finnst ómissandi með kjötbollunum og kálinu.
Nú hefur staðið til að borða kál oftar og ríflega af því. Ég hef gert hrásalat og er ánægð með það. En mig langar í fleiri möguleika því hvítkál er með því ódýrasta grænmeti sem fæst, það er saðsamt og holl næring. Ég vissi að það væri gjarnan pönnusteikt og minnir að ég hafi einhvern tíma gert það þó ekki hafi það verið eftirminnilegt.
Ég lagði því í smá óvissuferð í gær og pönnusteikti hvítkál í strimlum án uppskriftar með það eina leiðarljós að nota þau krydd sem mér líkar. Ég var eitthvað varfærin og notaði bara hálft kálhöfuð. Það hvarf eins og dögg fyrir sólu með fiskinum ofan í þrjá fullorðna. Þegar maðurinn minn spurði hvort hann mætti klára það litla sem eftir var þá varð ég að rifja upp auglýsinguna: "Elskarðu einhvern nógu mikið til að gera honum síðasta Rolo molann þinn?". Auðvitað, því kálið var komið í ausuna og hann át það. Eina sem ég lét út úr mér var að ég þyrfti að elda meira kál næst.
Steikta hvítkálið var prýðilegt með ofnbakaða fiskunum í pestósósunni sem mun fljótlega koma inn á bloggið. En nú er það hvítkálið sem á sviðið.
Uppskrift að meðlæti fyrir 3.
Innihald
600 gr hvítkál
1 meðalstór gulur laukur
1/2 rautt chili, saxað smátt eða 1/4 tsk chilliflögur
1/2 cm engiferrót, rifin
1/4 tsk salt
Svartur pipar
1-2 msk smjör
Aðferð
- Skera hvítkál í 1 cm breiða strimla.
- Skera laukinn í þunna strimla.
- Bræða smjör á meðalheitri pönnu.
- Setja engifer og chili á pönnuna, hræra aðeins til að losa engiferið í sundur.
- Setja laukinn á pönnuna og hræra saman við smjörið stutt stund.
- Setja hvítkálið á pönnuna og hræra vel svo smjörið dreifist um hvítkálið.
- Strá kryddi yfir innihald pönnunnar.
- Hræra af og til í réttinum og velta þá hvítkálinu svo það taki allt lit. Það á ekki að brenna.
- Smakka eftir 5 mínútur og meta hvort kálið er nógu soðið fyrir eigin smekk. Ef ekki, þá steikja aðeins lengur þangað til manni finnst nóg soðið.
Steikt hvítkál er prýðilegt meðlæti með ýmsum réttum og vel hægt að breyta bragði þess með vali á kryddi. Ég gæti vel hugsað mér hvítkál með karrýkryddi. Ef kálið er skorið í mjög þunna strimla þá mun rétturinn minna meira á núðlur. Það má sem best setja annað grænmeti með, til dæmis gulrætur í strimlum eða rifnar. Mig mundi líka langa í steikt hvítkál sem meðlæti með hrærðum eggjum.
Ég sagði ofar að hvítkál væri ódýrt. Ég fann kassakvittun frá 10. ágúst 2022 og þá kostaði kílóið af íslensku, nýuppteknu hvítkáli 360 krónur. Kálhöfuðið var rétt rúmt kíló og ég notaði helminginn af því í þennan rétt fyrir þrjá. Kálið kostaði í því 180 krónur í réttinn eða 60 krónur á mann. Laukur er líka ódýr. Ef fersku engifer og fersku chilli er sleppt og aðeins þau krydd sem þegar eru til í skápnum, þá er þetta mjög hagkvæmur réttur fyrir budduna.