Það hefur lengi verið stóra planið að elda súpur. En það hefur verið lítið um efndir hjá mér. Sjáum hvað setur. Þessi gulrótarsúpa er bragðmikil og hressandi, gleðjandi á litinn og flauelsmjúk á tungu.
Uppskrift fyrir 4. Magn 8 d af súpu.
Innihald
400 gr gulrætur
1 paprika, rauð eða gul
1 msk ólívuolía
¼ tsk cumin
1/8 tsk cayenne pipar
1/8 tsk karrý
1 hvítlauksrif
½ lítri kjúklingabeinasoð eða hálfur soðteningur
¼ tsk salt, ef þarf
1 msk kalt smjör
Aðferð
- Gulrætur flysjaðar og skornar á ská í ½ cm þykkar sneiðar.
- Paprika hreinsuð og skorin í bita.
- Hvítlaukur rifinn eða skorinn smátt.
- Olía hituð á miðlungshita og laukurinn látinn malla í nokkrar mínútur þar til hann mýkist. Varast að láta laukinn brúnast.
- Kryddunum og hvítlauknum bætt í og steikt í 30 sekúndur á meðan hrært er rólega í.
- Gulrótum og papriku bætt í og látið mýkjast í 2 mínútur, hræra í af og til.
- Soði bætt í pottinn og suðunni komið upp. Smakka á soðinu og salta ef þess þarf.
- Sjóða súpuna í 20-25 mínútur eða þar til gulræturnar eru orðnar meyrar.
- Súpan látin kólna í 15 mínútur og þá ausið í blandara til að mauka hana eða maukuð með töfrasprota í pottinum.
- Smjörinu bætt í og maukað stutt saman við.
Smjörið gerir súpuna kremkenndari og bætir áferðina án þess að trufla litinn. Mér finnst gott að bæta klípu af sýrðum rjóma út á súpuskammtinn minn í disknum en súpan er alveg jafngóð án þess. Ef enginn er blandarinn til skal ekki gráta það heldur borða súpuna eins og hún kemur fyrir. Þetta er ódýr súpa í eðli sínu. En það má gera hana enn ódýrari með því að sleppa paprikunni og nota þá 1 tsk af paprikudufti ef maður vill. Einnig má bæta í hana kókosmjólk eða kókosrjóma sem hækkar þá hráefnisverðið.